Upplýsingar María Björg Magnúsdóttir | 19 ágú 2009 04:21 pm
Námskeið 8 – þriðji dagur
Dagurinn hófst með leikjum og flokkarnir máluðu steinakarlana sem gerðir voru í gær. Þegar allir karlarnir voru tilbúnir lögðum við af stað á hjólum út á Álftanes. Við áðum við skólann og lékum okkur á þessum skemmtilega leikvelli og borðuðum hádegismatinn. Síðan var rölt í sundlaugina sem olli að venju engum vonbrigðum enda með eindæmum skemmtileg laug. Öldulaugin og rennibrautin voru mikið aðdráttarafl og vildu sumir helst ekki fara upp úr þegar að því kom. Kaffinestið var borðað fyrir utan laugina og reiðhjólin stigin aftur upp í Hraunbyrgi.
Á morgun ætlum við í dagsferð á Hvaleyrarvatn. Í hádeginu býður Útilífsskólinn upp á pylsur og djús en börnin þurfa að koma með kaffinesti. Við tökum strætisvagn upp eftir klukkan 10. Það var hins vegar villa í bréfinu sem við sendum heim í byrjun námskeiðsins en það er mikilvægt að foreldrar sæki börnin upp á Hvaleyrarvatn á milli klukkan 16 og 17 á morgun. Við biðjumst velvirðingar á þessum leiðu mistökum.
Hvar er Hvaleyrarvatn?
Ekið er um Kaldárselsveg og beygt upp til hægri inn á Hvaleyrarvatnsveg. Þar eru bílastæði.
