Útilífsnámskeið 7 – þriðji dagur

Daginn hófum við með morgunleikfimi svo við yrðum nú vel vöknuð fyrir ævintýrin sem biðu okkar. Því næst fórum við öll saman í leiki og svo hófst póstaleikur.  Við fengum lánaðan hoppukastala sem vakti mikla lukku. Í póstaleiknum fórum við í fyrrnefndan hoppukastala, máluðum gifsgrímurnar og fengum tilsögn varðandi hvernig skal pakka fyrir ferðir. Við marseruðum svo í Suðurbæjarlaug í sund. Mikið fjör var í sundi og ekki voru alveg allir tilbúnir að fara upp úr á tilskyldum tíma. Upp úr fóru þó allir og gengin var kraftganga aftur upp í skátaheimili.

Við minnum á að sérlega mikilvægt er að vera mætt klukkan tíu á morgun með hjól, farangur, nesti og góða skapið.

IMG_9379

Grallaranámskeið 2 - þriðji dagur

Við héldum okkur í grenndinni í dag. Farið var í tvo póstaleiki. Í þeim fyrri príluðum við í klifurveggnum, límdum saman steinana sem við völdum í fjörunni, brutum pappírsbáta og sigldum þeim á tjörninni og lærðum á snjóflóðaýla. Eftir póstaleikinn fórum við út að borða á túninu, lítt þekktur staður en nestið bragðaðist víst stórvel þar. Í seinni póstaleiknum fórum við í hoppukastalann, máluðum fyrrlímda steinakalla og fórum í nokkra vel valda leiki.

100_4112