Upplýsingar María Björg Magnúsdóttir | 07 ágú 2009 05:05 pm
Námskeið 6 – fjórði dagur
Í dag var farið í dagsferð að Hvaleyrarvatni. Við komuna að vatninu fórum við í gönguferð í kringum vatnið þar sem börnin voru dugleg að syngja og hafa gaman. Því næst fórum við í nokkra leiki og fengum okkur síðan grillaðar pylsur og djús. Eftir hádegi var svo farið í póstaleik þar sem börnin bjuggu til sandkastala, fóru í leit með snjóflóðaýlu, fóru í leiki og bjuggu til skemmtiatriði. Eftir það fengu börnin sér smá nesti og komu sér svo fyrir í laut skammt frá vatninu. Þar var haldin síðdegisvaka þar sem sungin voru lög við góðar undirtektir og börnin fengu að sýna skemmtiatriði sem þau höfðu búið til fyrr um daginn.
