Fréttir eða Ummæli 10 September 2010

Mánaðrfréttir fyrir "júlí 2009"



Upplýsingar Nanna Guðrún Bjarnadóttir | 31 júl 2009

Nýtt útilífsnámskeið byrjar á þiðjudaginn

Útilífsskólinn byrjar aftur á þriðjudaginn eftir stutt sumarfrí. við viljum vekja athygli að það eru en laus pláss á það námskeið.

Hægt er að skrá sig í síma 823-5028, einnig er hægt að skrá með því að senda tölvupóst á utilifsskoli@hraunbuar.is í tölvupóstinum þarf að koma fram:

- Nafn þátttakanda
- Kennitala
- Heimilisfang
- Póstnúmer
- Heimasími

- Aðstandandi 1, nafn
- Farsími
- Tölvupóstfang

- Aðstandandi 2, nafn
- Heimasími
- Farsími

- einnig er gott að vita ef það eru einhver veikindi lyf eða sérþarfir.

Ef einhverjar spurningar eða athugasemdir vakna þá ekki hika við að hafa samband við okkur í gegnum síma eða tölvupóst.


Upplýsingar Marí­a Björg Magnúsdóttir | 17 júl 2009

Námskeið 5 – fimmti dagur

Dagurinn í dag gekk eins og í sögu. Fólk tíndist á fætur upp úr átta, mishresst en um hálf níu voru flestir orðnir sprækir. Klukkan tíu hófst svo póstaleikur þar sem flokkarnir fengu hver um sig kort af svæðinu með póstunum merktum  inn á. Flokkarnir vöppuðu svo á milli pósta eins og þá lysti. Í boði voru meðal annars hoppukastali, poppun yfir eldi, kakógerð á prímus, vinabönd, trúðaskóli, skyndihjálp, strandbolti og víkingaspilið Kubb.

Rétt fyrir klukkan tvö var börnunum safnað saman, allir tóku sitt dót og hóparnir hurfu hver af öðrum til síns heima. Við tók frágangur hjá okkur Hraunbúunum og börnin fengu val um klifurvegg, hengimann og leiki.

Útilegan heppnaðist mjög vel og við vorum einstaklega heppin með veður báða dagana. Það er þó talsvert um óskilamuni og má vitja þeirra hingað í Hraunbyrgi á kvöldin í næstu viku á milli klukkan 17 og 22.

Upplýsingar Marí­a Björg Magnúsdóttir | 16 júl 2009

Námskeið 5 – fjórði dagur

Í dag hófst sameiginleg útilega Útilífsskólanna á Höfuðborgarsvæðinu. Við í Hraunbúum byrjuðum á því að mála steinakallana okkar og fara í nokkra leiki á meðan hóparnir frá hinum útilífsskólunum tíndust á svæðið. Um hádegi var snætt og svo haldið af stað í Kapphlaupið mikla. Í kapphlaupinu fara hóparnir á hinar ýmsu stöðvar um allan bæ og ljúka hvers kyns verkefnum.  Að þessu sinni var í boði dorg á höfninni, sund í Suðurbæjarlaug,  tásuhike í Hellisgerði,  kanósigling á Víðistaðatúni, sig í hrauninu hjá Víðistaðatúni og klifurturn hjá Hraunbyrgi. Sumarfögnuður vinnuskólans var á Víðistaðatúni í dag. Skemmtiatriði voru á túninu í tengslum við umræddan fögnuð og fylgdust sumir hóparnir með þeim.  Um sexleytið fara hóparnir að snúa aftur í höfuðstöðvarnar. Þar verða grillaðar pylsur ofan í mannskapinn og stuttu eftir mat verður haldin kvöldavaka eins og skátunum einum er lagið.

Upplýsingar Marí­a Björg Magnúsdóttir | 15 júl 2009

Námskeið 5 – þriðji dagur

Þegar allir voru mættir í morgun lögðum við af stað í hjólaferðina á Álftanes. Við áðum við Garðakirkju og hvíldum okkur stutta stund áður en við lögðum aftur í hann. Þá hjóluðum við alla leið að Grunnskóla Álftanesss en þar borðuðum við hádegismatinn og lékum okkur í dágóða stund á þessum sívinsæla leikvelli. Eftir um klukkutíma leik fórum við í fjöruna rétt hjá Garðakirkju og tíndum þar steina í steinakarla. Þar fundum við líka ýmislegt spennandi eins og krabba, marglyttur og fjölskrúðuga steina. Við hjóluðum síðan aftur upp í Hraunbyrgi, stoppuðum aftur rétt hjá kirkjunni og borðuðum kaffinestið og fórum í nokkra leiki en þegar við komum til baka tók við örstuttur póstaleikur. Þá klifruðum við aðeins í klifurveggnum, límdum steinakarla og fórum í leiki.

IMG_8206

Við minnum á útileguna á Víðistaðatúni á morgun. Við erum með tjöld og dýnur en allir þurfa að koma með svefnpoka. Það er líka mikilvægt að allir komi með sundföt.

Upplýsingar Marí­a Björg Magnúsdóttir | 14 júl 2009

Námskeið 5 – annar dagur

Dagurinn hófst á gönguferð í Hellisgerði. Þar fórum við í stuttan póstaleik þar sem við meðal annars lærðum að flagga, fórum í refaleit með snjóflóðaýlum og bjuggum til skemmtiatriði. Í hádegismatnum sýndi svo hver flokkur sitt skemmtiatriði á stóra sviðinu. Eftir matinn lékum við okkur í garðinum áður en við gengum aftur til baka í Hraunbyrgi. Þá fórum við í annan póstaleik þar sem við klifruðum í klifurveggnum, lærðum á áttavita og grilluðum pylsur yfir eldi.

Á morgun ætlum við í hjólaferð og því er mikilvægt að allir komi með hjól, hjálm og ferðanesti.

IMG_8142

Upplýsingar Marí­a Björg Magnúsdóttir | 13 júl 2009

Námskeið 5: Fyrsti dagur

Veðrið lék við okkur í dag og við nýttum okkur það út í ystu æsar. Upp úr 10 skelltum við okkur út í leiki og skiptum okkur svo í flokka. Að þessu sinni eru flokkarnir 3 og bera þeir nöfnin: Töffararnir, 29 og Bláu eldingarnar. Eftir hádegismat var komið að vígslu þar sem öll börnin fengu gulan útilífsskólaklút og hnút með nafni hvers og eins. Að því loknu var komið að póstaleik, þá voru haldnir litlir ólympíuleikar, farið í kims-leik, núðlur eldaðar á prímus og farið í leikinn stiklað á stóru.

Á morgun ætlum við í Hellisgerði og því er mikilvægt að allir komi með nesti sem hægt er að borða úti við.

IMG_8052

Upplýsingar Marí­a Björg Magnúsdóttir | 10 júl 2009

Námskeið 4 – fimmti dagur

Í dag skelltum við okkur á Hvaleyrarvatn í stórskemmtilega dagsferð. Við fórum með rútu frá Hraunbyrgi að vatninu og gerðum okkur svo lítið fyrir og löbbuðum hringinn í kringum vatnið. Við áðum tvisvar á leið okkar. Fyrra skiptið gæddum við okkur á ávöxtum en í hinu seinna grilluðum við svo kallað hike-brauð. Þó svo að hike-brauðið hafi satt sárasta hungrið vorum við ekki alveg mett og okkar biðu grillaðar pylsur þegar við komum aftur að skálanum. Eftir mat var tekinn póstaleikur þar sem meðal annars voru búin til skemmtiatriði og farið út á báta. Að póstaleiknum loknum var frjáls tími sem flestir nýttu til að vaða eða fara út á báta en nokkrir fóru í göngu í skóginum. Í lok dags voru skemmtiatriðin sýnd og haldið heim á leið.

Dagurinn gekk afar vel fyrir sig enda væri varla hægt að biðja um betra ferðaveður.

IMG_7810

Upplýsingar Marí­a Björg Magnúsdóttir | 09 júl 2009

Námskeið 4: fjórði dagur

Dagurinn hófst á laufléttum póstaleik þar sem farið var í fjölbreytta leiki, gifsgrímur gærdagsins voru málaðar sem og steinakallar svo var einnig farið yfir hvernig þykir best að klæða sig fyrir hin ýmsu veðurskilyrði. Eftir hádegi var svo haldið í fjársjóðsleit þar sem leyst voru hvers kyns verkefni í skiptum fyrir bút úr korti sem að lokum leiddi að fjársjóðskistu en í henni leyndist góðgæti.

Á morgun förum við í dagsferð á Hvaleyrarvatn. Mikilvægt er að allir hafi nesti sem hægt er að borða úti við. Veðurspáin er góð og gott væri að að taka með sér handklæði og stuttbuxur ef vilji er til að vaða. Við minnum svo á að sækja þarf börnin upp á Hvaleyrarvatn milli klukkan fjögur og fimm. (Ekið er um Kaldárselsveg og beygt upp til hægri inn á Hvaleyrarvatnsveg. Þar eru bílastæði)

IMG_7759

Upplýsingar Marí­a Björg Magnúsdóttir | 08 júl 2009

Námskeið 4: þriðji dagur

Dagurinn hófst á gipsgrímugerð og bjuggum við til nákvæmar eftirmyndir af börnunum úr gipsi. Á morgun ætlum við svo að mála þær. Þegar allir sem vildu grímu voru búnir þá lögðum við af stað á Álftanes og gekk hjólaferðin mjög vel. Við áðum við Grunnskóla Álftaness og borðuðum nestið og lékum okkur á þessum geysivinsæla leikvelli. Þaðan lá svo leiðin í Sundlaug Álftaness. Veðrið lék við okkur og skemmtu allir sér stórvel og öldulaugin og rennibrautin slógu í gegn sem fyrr.

Við hjóluðum síðan sem leið lá heim aftur í Hraunbyrgi eftir sundferðina og fóru síðan allir glaðir til síns heima.

IMG_7684

Upplýsingar Nanna Guðrún Bjarnadóttir | 07 júl 2009

Námskeið 4 – annar dagur

Dagurinn í dag hófst með ferð í fjöruna. Á leið okkar í fjöruna stoppuðum við og tókum myndir af flokkunum og hópmynd af öllum saman. Í fjörunni var margt skrýtið og skemmtilegt að sjá, þar á meðal krossfiskar og eitt stykki skötuselur. Við borðuðum svo nestið okkar í fjörunni og héldum svo til baka. Sumir týndu steina í fjörunni og þegar við komum til baka fengu þau að föndra úr þeim kalla á meðan aðrir skemmtu sér við leiki. Um eitt hófum við póstaleik. Í póstaleiknum var poppað yfir eld, farið yfir helstu atriði í skyndihjálp, kennt að flagga, farið í blindragöngu og byggð voru skýli.

Á morgun, miðvikudag, verður farið í sund og hjólaferð. Því verða allir að koma með:
hjól, hjálm, sundföt, handklæði og nesti sem hægt er að borða á leiðinni í sund.

Af gefnu tilefni viljum við minna á að börnin þurfa að koma vel klædd.

IMG_7478

Næsta síða »