Upplýsingar Dagný Vilhelmsdóttir | 21 ágú 2008
Námskeið 7: 3. og 4. dagur
Klukkan tíu hófst ferð okkar, við stigum upp í rútuna og sóttum svo krakka úr útilífsskólum annarra skátafélaga. þegar við komum á Hafravatn var blankalogn og glampandi sólskin. Við komum okkur fyrir á svefnstöðunum okkar, fengum okkur hádegismat og svo hófst póstaleikur. í póstaleiknum var farið á kanó, poppað popp, farið í stórskemmtilega leiki, grillaðir sykurpúðar, farið létt yfir skyndihjálp svo var einnig farið í fótbolta og náttúruhæk á tánum. Um kvöldið voru svo grillaðar pylsur og þær borðaðar með bestu lyst. Eftir kvöldmat var svo stórskemmtileg kvöldvaka með hinum ýmsu skemmtiatriðum. Kvöldkaffi og lítill næturleikur tóku svo við fyrir háttinn. í dag var nokkuð frjálst og mikið um berjamó og blá krakka. Um hádegi var svo farið í smá fjallgöngu og svo haldið heim á leið. þegar við komum til baka í fjörðinn héldum við okkur bara innadyra enda rigndi eins og hellt væri úr fötu hér á höfuðstöðvunum.
Upplýsingar Nanna Guðrún Bjarnadóttir | 19 ágú 2008
Námskeið 7 : dagur 2
í dag fórum við í sund í suðurbæjarlaug í sól og blíðu, eftir sundið fórum við á Hamarin hjá Flensborg og skoðuðum útsýnið, eftir það gengum við í Hellisgerði þar sem við fórum í leiki.
í morgun förum við í útilegu á Hafravatn þar sem við gistum eina nótt.
Upplýsingar Nanna Guðrún Bjarnadóttir | 19 ágú 2008
Námskeið 7 : dagur 1
í gær kom nýr hópur í útilífsskóla og byrjuðum við dagin á að kynnast og fara í leiki. Við fundum flokksnöfn á flokkana okkar og gerðum flokksfána. Eftir hádegi klifruðum við og elduðum núðlusúpu. í lok dags vígðust allir í útilífsskóla og fengu útilífsskólaklút.
Námskeið 6 Smári Guðnason | 19 ágú 2008
Námskeið 6: Dagur 5 – Dagsferð
í dag var hjólað uppá Hvaleyrarvatn í dagsferð. í Hvaleyrarvatni var farið á kanó, gerð skemmtiatriði, farið í refaleit og leiki. Að loknum póstaleik voru grillaðar pylsur og svo var haldin kvöldvaka þar sem flokkarnir sýndu skemmtiatriði. Ferðinni var svo lokið kl 19 þegar foreldrar komu og sóttu ánægða krakka á Hvaleyrarvatnið.
Upplýsingar Nanna Guðrún Bjarnadóttir | 15 ágú 2008
Námskeið 6: dagur 4
í gær gerðum við margt skemmtilegt, við lærðum að búa til sjúkrabörur úr priki og fötum, fórum í klifurvegginn og lærðum marga nýja leiki. þegar við ætluðum að fara í götuleik þá kom hellidemba og hlupum við inn . í meðan það ringdi úti, vorum við inna að spila, gera vinarbönd, klifra og höfðum það notarlegt.
í dag munum við svo fara í dagsferð á Hvaleyrarvatn og lýkur henni kl 19:00.
Upplýsingar Nanna Guðrún Bjarnadóttir | 15 ágú 2008
Námskeið 6: dagur 3
í miðvikudaginn máluðum við steinkallana sem við týndum í fjörunni og fórum í leiki. Eftir það tókum við strætó inn í Reykjavík þar sem fórum í sund í laugardaglslauginni í blíðskaparveðri og borðuðum nestið okkar í Laugardalnum.
Upplýsingar Nanna Guðrún Bjarnadóttir | 12 ágú 2008
Námskeið 6: dagur 2
í dag var æðislegt veður og fyrir hádegi fórum við í náttúruskoðun og fjöruferð þar sem við týndum steina, eftir hádegismat fórum við að klifra, límdum saman steinkalla og poppuðum popp á eldi.
því miður er myndavélasnúran okkar týnd en vonandi koma myndir frá fyrsta og öðrum degi á fyrramálið.
Upplýsingar Nanna Guðrún Bjarnadóttir | 12 ágú 2008
Námskeið 6: dagur 1
í gær kom nýr hópur í útilífsskólan og byrjaði dagurinn á kynningarleikjum og flokkaverkefnum þar sem flokkarnir fundu sér nafn og gerðu sér flokksfána. Eftir hádeigismat elduðum við núðlusúpur, fórum í Kims leiki, kepptu í litlu ólympíuleikunum, lærðum slökun og fleira. í lok dagsins vígðust allir og fengu skátaklúta.