Upplýsingar Nanna Guðrún Bjarnadóttir | 24 júl 2008
íštilífsskólinn í fríi
Núna er útilífsskóli í fríi vegna Landsmóts skáta sem stendur yfir á Akureyri. Tvö námskeið verða haldin í ágúst:
Námskeið 6 – 11. – 15. ágúst ““ dagsferð
Námskeið 7 – 18. ““ 21. ágúst ““ útilega**Â
** 4 daga námskeið, frí á föstudeginum 22. ágúst, útilega frá miðvikudegi til fimmtudags
skráning stendur yfir bæði hér á heimasíðunni og í síma 823-5028
Upplýsingar María Björg Magnúsdóttir | 18 júl 2008
Námskeið 5: Dagar 4 og 5
í dag lauk fimmta námskeiði sumarsins en í þetta skiptið var útilegan sameiginleg með mörgum útilífsskólum á Höfuðborgarsvæðinu. Hinir hóparnir mættu flestir á Víðistaðatún um ellefuleytið og þá komu allir sér fyrir í tjaldbúðunum sem reistar voru á túninu. Póstaleikurinn hófst eftir hádegismat en hann var valfrjáls þannig að flokkarnir máttu velja hvaða pósta þeir vildu fara á. í boði var meðal annars sig í klettunum við Víðistaðatún, klifur í stórum klifurturni, dorga niðri á höfn, sund í Suðurbæjarlaug og sjóferð með Björgunarsveit Hafnarfjarðar. Eftir póstaleikinn var boðið upp á grillaðar pylsur og meðlæti og síðan var frjáls stund fram að kvöldvöku. í kvöldvökunni var mikið fjör og vel tekið undir í söngnum. Síðan tók við næturleikur og kakó. þá var kominn tími á að skríða ofan í poka og ekki leið á löngu fyrr en það var þögn yfir tjalbúðunum enda flestir vel þreyttir eftir daginn.
Ræs var um hálf níu í morgun og þá tóku krakkarnir dótið sitt saman og tóku til í tjaldinu, borðuðu morgunmat og svo tók tjaldbúðaskoðunin við. Snyrtilegasta tjaldið var hjá flokknum 7878. Síðan var annar frjáls póstaleikur þar sem í boði var að poppa yfir grilli, elda núðlur á prímus, fara í ýmsa skátaleiki, gera vinabönd og fara í hoppukastala. Mótinu var svo slitið um tvö og hinir hóparnir fóru til síns heima en við vorum eftir og höfðum það náðugt þar til við slitum námskeiðinu og afhentum viðurkenningar.
Upplýsingar María Björg Magnúsdóttir | 16 júl 2008
Námskeið 5: Dagur 3
Um leið og allir voru mættir hingað í Hraunbyrgi í morgun lögðum við af stað sem leið lá í átt að ílftanesi. Við stoppuðum í fjörunni rétt áður en þangað er komið, borðuðum nestið og eyddum þar dágóðri stund. Síðan hjóluðum við áfram í átt að ílftanesi og enduðum á leikvelli rétt hjá ílftanesskóla. Leiktækin voru afar vinsæl og þarna var mikið fjör. Við hjóluðum síðan heim í Hraunbyrgi aftur sömu leið og við komum og þá tók við róleg stund þangað til börnin fóru að tínast heim eitt af öðru.
Upplýsingar María Björg Magnúsdóttir | 15 júl 2008
Námskeið 5: Dagur 2
í morgun fórum við í fánapóstaleik þar sem börnin lærðu að hnýta fánahnút, að flagga og ýmislegt fleira sem viðkemur íslenska fánanum. Eftir hádegismat var annar póstaleikur og þá var kennd skyndihjálp, grillaðar pylsur yfir eldi, farið í leiki og klifrað í klifurveggnum.
Við minnum á að mikilvægt er að allir komi á hjólum á morgun og með hjálm. Við ætlum í hjólatúr út á ílftanes og munum borða nestið okkar þar. Nestið verður þó ferjað með bíl svo börnin þurfa ekki að bera það sjálf. Ef einhver ekki treystir sér til þess að hjóla fær viðkomandi far með bílnum.
Upplýsingar Dagný Vilhelmsdóttir | 14 júl 2008
Námskeið 5: Dagur 1
í dag hófst fimmta námskeiðið hjá okkur þetta sumar. Dagurinn hófst að vanda á kynningarleikjum og svo var skipt í flokka. Flokkarnir eru fjórir að þessu sinni, þrír stúlknaflokkar og einn drengja, og heita flokkarnir Smárar, Stjörnur, 7878 og Hunters. Flokkarnir gerðu hver sinn flokksfána og hróp en eftir það var snæddur hádegisverður. Um hádegi fórum við í póstaleik. í póstaleiknum var farið í Kims leik, núðlusúpa hituð á prímus, haldnir voru litlir ólympíuleikar og farið var í hinn sívinsæla leik Stiklað á stóru. Eftir póstaleikinn var kaffitími. Að kaffitímanum loknum var stiginn trylltur dans en farið var í leikinn ísadans. í lok dagsins var svo vígsla, athöfn við fánastöngina þar sem flaggað var og svo fengu börnin klút og hnút.
Námskeið 4 Dagný Vilhelmsdóttir | 11 júl 2008
Námskeið 4: Dagur 5
í dag fórum við í dagsferð á Hvaleyrarvatn og tókum okkur margt og mikið fyrir hendur þar. Við hjóluðum af stað á Hvaleyrarvatn upp úr tíu. Ferðin á staðinn gekk einkar vel og þegar á staðinn var komið fengum við okkur hádegismat. Um eitt hófst svo póstaleikur þar sem farið var á kanóa, grillað hækbrauð, búið til skemmtiatrið og börnin fengu að spreyta sig að leita með snjóflóðaýlu en fyrr hafði verið falin önnur slík. Er leið á kvöld var kveikt upp í grillinu og í kvöldmat var boðið upp á grillaðar pylsur. Stuttu eftir matartímann hófst kvöldvaka þar sem sungið var og trallað auk þess sem flokkarnir buðu upp á fyrrnefnd skemmtiatriði.
Börnin áttu að fara heim með gifsgrímurnar sínar í dag en það fór forgörðum, hægt er að nálgast grímurnar hjá okkur milli 9 og 5 næstkomandi mánudag og þriðjudag. Einnig má hringja í síma 5650901 til að grennslast fyrir um hvernig megi nálgast þessar forláta grímur.
Upplýsingar Dagný Vilhelmsdóttir | 11 júl 2008
Námskeið 4: Dagur 4
í dag var ýmislegt gert. Dagurinn byrjaði að vanda á fánaathöfn og morgunleikfimi. Eftir það var haldið í póstaleik, í honum var poppað yfir eldi, farið í kassaklifur og grímur gærdagsins málaðar. Eftir hádegi var haldið í stórskemmtilegan götuleik um bæinn þar sem hin ýmsu verkefni voru leyst, þá var meðal annars farið í Hellisgerði og á Hamarinn. Við heimkomu voru flestir orðnir eilítið þreyttir og síðasta hálftímann var slappað af og borðað nesti.
Upplýsingar Dagný Vilhelmsdóttir | 09 júl 2008
Námskeið 4: Dagur 3
í dag bjuggum við til gifsgrímur áður en haldið var í sund. í þetta skiptið varð Salalaugin fyrir valinu og þar þrifum við af okkur gifsleifar og vaselínmaska. Við tókum tvo strætóa í sund og gekk það eins og í sögu. Hádegismat snæddum við rétt hjá salalauginni áður en við skelltum okkur út í. Rennibraut staðarins sló í gegn hjá öllum og virtust sumir vera þeim hugleiðingum að flytja lögheimili sitt í rennibrautina. Við héldum þó upp úr að lokum enda þurftum við að ná strætó aftur heim í Hraunbyrgi. Ferðin til baka gekk prýðilega. Við fengum okkur svo restina af nestinu á Víðistaðatúni og fórum svo í leiki á hólnum fyrir framan Hraunbyrgi.
Upplýsingar María Björg Magnúsdóttir | 08 júl 2008
Námskeið 4: Dagur 2
Dagurinn byrjaði á að við flögguðum og fórum í smá morgunleikfimi. Síðan tóku allir saman föggur sínar og við gengum sem leið lá í Hellisgerði. þar fórum við í nokkra leiki og fórum svo í fánapóstaleik. þá lærðum við fánareglurnar, fánahnút og að flagga. Við borðuðum svo hádegismatinn okkar þar og eyddum þarna dágóðum tíma við leiki og gleði. Við fórum svo aftur upp í Hraunbyrgi og tók þá við póstaleikur þar sem við klifruðum í klifurveggnum, lærðum skyndihjálp, kveiktum eld og grilluðum pylsur.
Â
Upplýsingar María Björg Magnúsdóttir | 08 júl 2008
Námskeið 4: Dagur 1
Dagurinn byrjaði á kynningarleikjum og svo var skipt í flokka. Flokkarnir fundu sér nafn og flokkshróp og bjuggu sér svo til fána. Flokkarnir eru aðeins tveir og heitir strákaflokkurinn Hunters og stúlknaflokkurinn Litlu krúsídúllurnar. Eftir mat tók við póstaleikur þar sem krakkarnir meðal annars lærðu dulmál, kepptu í ýmsum þrautum og fóru í kimsleik. Eftir kaffitímann var vígsla og þá var flaggað og allir krakkarnir fengu útilífsskólaklút og hnút.