Upplýsingar María Björg Magnúsdóttir | 30 jún 2008
Námskeið 3: Dagur 1
Dagurinn byrjaði á kynningar- og nafnaleikjum. Síðan var krökkunum skipt í 3 flokka og hver flokkur fann sér nafn, flokkshróp og bjó svo til flokksfána. Eftir mat var komið að vígslunni þar sem allir fengu klút og hnút. þá tók við póstaleikur þar sem meðal annars voru eldaðar núðlur á prímus, haldnir litlir Ólympíuleikar og farið í Kims-leik. Eftir kaffi var svo farið í ýmsa leiki á Víðistaðatúni.
Dagskrá þessarar viku er eitthvað á þessa leið:
þriðjudagur: Fjöruferð
Miðvikudagur: Sund
Fimmtudagur til föstudags: íštilega á Hvaleyrarvatni, farið verður á hjólum.
Námskeið 2 Dagný Vilhelmsdóttir | 27 jún 2008
2. námskeið: 4. og 5. dagur
Við lögðum af stað á Hvaleyrarvatn upp úr 10 á fimmtudeginum. þegar komið var á Hvaleyrarvatn fengum við okkur hádegismat og hófum svo póstaleik. í póstaleiknum fórum við á kanóa, poppuðum yfir eldi, skoðuðum skátahandbókina, bjuggum til skemmtiatriði fyrir kvöldið oglærðum að hnýta nokkra nytsamlega hnúta ásamt því að súrra þrífót. Eftir póstaleikinn tók við frjáls tími þar sem ýmislegt var brallað fram að kvöldat en í matinn voru grillaðar pylsur. Stuttu eftir mat var kveiktur varðeldur og haldin kvöldvaka, rétt fyrir utan tjaldstæðið okkar. í kvöldvökunni sýndu flokkarnir skemmtiatriðin sín og þess á milli var sungið og trallað. í dag fórum við í stuttan póstaleik. í honum lærðum við um útivistarklæðnað, ætar plöntur í náttúrunni og á áttavita. Fram að brottför var svo frjáls tími þar sem valið stóð á milli þess að gera vinabönd, fara í leiki, fara út á kanó eða hreinlega finna upp á einhverju skemmtilegu sjálfur. Um tvö í dag var svo lagt af stað aftur upp í skátaheimili og gekk ferðin þangað afar vel.
Myndir frá útilegunni eru hér.
Upplýsingar María Björg Magnúsdóttir | 25 jún 2008
Námskeið 2: Dagur 3
Dagurinn byrjaði með morgunleikfimi og fána, síðan var hægt að velja um að gera vinabönd, teikna eða vera úti í leikjum þangað til við lögðum af stað í sund. Við tókum strætó inn í Kópavog þar sem við borðuðum nestið og fórum svo í gömlu-nýju laugina í Kópavogi. Eftir mikið svaml og leiki fórum við svo upp úr og tókum aftur strætó inn í Hafnarfjörð þar sem við borðuðum kaffi og fórum svo í leiki.
Upplýsingar Nanna Guðrún Bjarnadóttir | 25 jún 2008
Hjólað í íštileguna
það gleymdist að setja í bréfið sem fór heim að það verður hjólað í útileguna á Hvaleyrarvatn á morgun og til baka á föstudeginum. Minnum alla á að mæta á morgun á hjóli og með hjálm.
Upplýsingar Nanna Guðrún Bjarnadóttir | 25 jún 2008
Námskeið 2: Dagur 2
í dag var farið í póstaleiki um svæðið. Við lærðum ýmislegt varðandi fánann okkar svo sem reglur varðandi meðferð hans og notkun, fánahnút og að flagga. Eftir hádegi tók við klifur, dulmál, eldun á prímus og skyndihjálp.
Námskeið 2 María Björg Magnúsdóttir | 23 jún 2008
Námskeið 2: Dagur 1
í morgun fórum við í ýmsa kynningar- og nafnaleiki. Svo var skipt í flokka og hver flokkur fann sér nafn og flokkshróp og bjó sér svo til flokksfána. Eftir hádegismat var svo vígslan og þá fengu allir klút og hnút. Að því loknu fórum við í póstaleik þar sem til dæmis var iðkað jóga, farið í kims-leik og grillaðar pylsur á teini og ýmislegt fleira skemmtilegt.
Upplýsingar Nanna Guðrún Bjarnadóttir | 23 jún 2008
Villa í bréfi
í bréfinu sem var sent heim fyrir námskeið 2 stóð að útilegan væri 19. júlí en þetta er vitlaust. íštilegan er auðvitað næsta fimmtudag eða þann 26. júní.
Námskeið 1 Dagný Vilhelmsdóttir | 20 jún 2008
Námskeið 1: Dagur 4
í dag var farið í dagsferð, hjólað var að Hvaleyrarvatni og þar farið í póstaleik. Farið var út á bátana, grilluð hækbrauð, lært að skrifa dulmál og búin til skemmtiatriði fyrir kvöldið. í kvöldmat voru grillaðar pylsur og eftir mat var kvöldvaka þar sem flokkarnir sýndu hver sitt skemmtiatriði og sungin voru sígild lög.
Námskeið 1 María Björg Magnúsdóttir | 19 jún 2008
1. námskeið. Dagur 3
í morgun fórum við í póstaleik, í honum var klifrað, poppað á eldi og gerðir steinkallar úr steinunum sem við fundum í fjörunni í gær. Einnig var blindrapóstur og skyndihjálparfræðsla. Eftir hádegi fórum við í götuleik um bæinn þar sem leyst voru ýmis skemmtileg verkefni. Myndir frá deginum eru komnar á netið.
Námskeið 1 Dagný Vilhelmsdóttir | 18 jún 2008
1. námskeið: Dagur 2
í dag lukum við við póstaleikinn sem við hófum á mánudaginn, en ekki náðist að klára hann vegna veðurs. Farið var í fjöruna við Herjólfsgötu og þar týndir steinar sem verða svo notaðir á morgun. Við gengum frá Herjólfsgötu í Suðurbæjarlaug með stoppi á Thorsplani þar sem snæddur var hádegisverður. Eftir sundið gengum við heim á leið meðfram sjónum.