Námskeið 7 Smári Guðnason | 26 júl 2007
Sjöunda námskeiðið
í dag hófst sjöunda námskeið útilífsskólans. Við byrjuðum á því að fara í nokkra kynningarleiki og skipta krökkunum niður í tvo flokka sem fundu sér síðan nafn og hróp í sameiningu og bjuggu síðan til flokksfána. Eftir hádegi var farið í póstalaeik þar sem krakkarnir fengu að klifra, læra skátadulmál, fara í nokkrar skátaþrautir og margt fleira.
Námskeið 6 Nanna Guðrún Bjarnadóttir | 21 júl 2007
The Amazing race
í fimmtudaginn og föstudaginn fórum við í útilegu á Víðistaðartúni ásamt öðrum útilífsskólum á höfuðborgarsvæðinu. í fimmtudeginum fórum við í risa póstaleik um allan Hafnarfjörð, þar fórum við að dorga, fórum í sjóferð með Björgunarsveit Hafnarfjarðar, sund, tásluhike í Hellisgerði, kanóa, sig og Klifur. Um kvöldið var svo haldin kvöldvaka þar sem allir sungu og skemmtu sér. í föstudeginum poppuðum við popp, spældum egg og hituðum núðlusúpur á prímus, gerðum vinabönd og margt fleirra. þessi útilega heppnaðist ótrúlega vel og fóru allir ánægðir heim.
Námskeið 6 Nanna Guðrún Bjarnadóttir | 19 júl 2007
Dagur 3 – Hjólaferð
í dag fórum við í hjólaferð á ílftanes þar sem við konum við í fjörunni og týndum steina og borðuðum hádeigismat. í famhaldi af því hjóluðum við í gegnum ílftanesbæ og svo til bara í Hraunbyrgi. þegar við vorum komin til bara eftir góða hjólaferð fórum við í kims-leik og bjuggum til steinkalla og úr steinunum sem við týndum í fjörunni.
Námskeið 6 Nanna Guðrún Bjarnadóttir | 18 júl 2007
Dagur 2
Námskeið 6 Smári Guðnason | 17 júl 2007
Námskeið 6 hafið
í dag hófst sjötta námskeið íštilífsskólans. Við byrjuðum á því að fara í kynningarleiki og svo skiptum við krökkunum í flokka. þá ákváðu flokkarnir sér nafn og flokkshróp í sameiningu ásamt því að búa til fána.
Eftir hádegi var farið í póstaleik þar sem krakkarnir lærðu að hita núðlur á prímus, fengu að klifra og margt fleira.
Námskeið 5 Smári Guðnason | 17 júl 2007
Vel heppnuð útilega
í dag lauk útilegunni á Hvaleyrarvatni og skemmtu krakkarnir sér mjög vel í góða veðrinu. í gær fórum við útá báta, lékum okkur í vatninu, veiddum síli og æfðum skemmtiatriði. Um kvöldið var haldin kvöldvaka þar sem við kveiktum eld, sungum saman og sýndum skemmtiatriði.
 í föstudeginum var farið útá báta og leikið í fjörunni við mikla kátínu krakkanna.
Námskeið 5 Nanna Guðrún Bjarnadóttir | 11 júl 2007
Dagur 3
Fyrir hádegi fóru krakkarnir í póstaleik þar sem þau lærðu skátadulmál, fóru í kims-leik (minnisleik) og margt fleira. Rétt fyrir hádegi var lagt af stað með strætó í Salalaugina í Kópavogi þar sem krakkarnir skemmtu sér svaka vel fram eftir degi.
 í morgun hjólum við á Hvaleyrarvatn og er því mjög mikilvægt að allir mæti á hjólum sem eru í góðu lagi.
Námskeið 5 Smári Guðnason | 10 júl 2007
Fimmta námskeiðið – Dagur 2
í dag var leikjaþema og lærðu krakkarnir skátaleiki í bland við hefðbundna leiki fyrir hádegi. Eftir hádegi fengu krakkarnir að grilla pylsur yfir eldi, klifra, prufuðu að vera labba í blindraþraut með bundið fyrir augun og margt fleira.
í morgun förum við í sund í Salalauginni í Kópavogi og munum við borða nestið á leiðinni í sund og er því mikilvægt að allir komi með nesti sem hægt er að borða úti.
Námskeið 4 Smári Guðnason | 06 júl 2007
Dagsferðin – 4. námskeið
í dag fórum við í dagsferð uppá Hvaleyrarvatn. þegar komið var á áfangastað fengu krakkarnir sér að borða og svo hófst póstaleikur við vatnið þar sem farið var útá kanó, poppað popp yfir eldi, búin til skemmtiatriði og margt fleira. Eftir póstaleikinn héldum við kvöldvöku þar sem hver flokkur sýndi skemmtiatriðið sem þau höfðu búið til fyrr um daginn og sungum saman létta skátasöngva. Eftir kvöldvökuna var farið beint í það að grilla pylsur og gefa krökkunum að borða svo var lagt af stað á hinn endann á vatninu þar sem foreldrar sóttu krakkana.
Námskeið 4 Smári Guðnason | 04 júl 2007
Dagur 3
í dag fórum við í póstaleik fyrir hádegi þar sem við gerðum gifsgrímur, fórum í leiki og margt fleira. Eftir hádegi var ferðinni heitið í Sundhöll Hafnarfjarðar og skemmtu krakkarnir sér svaka vel á sundi.