Fréttir eða Ummæli 10 September 2010

Sarpur fyrir "Námskeið 4"



Námskeið 4 Dagný Vilhelmsdóttir | 11 júl 2008

Námskeið 4: Dagur 5

í dag fórum við í­ dagsferð á Hvaleyrarvatn og tókum okkur margt og mikið fyrir hendur þar. Við hjóluðum af stað á Hvaleyrarvatn upp úr tí­u. Ferðin á staðinn gekk einkar vel og þegar á staðinn var komið fengum við okkur hádegismat. Um eitt hófst svo póstaleikur þar sem farið var á kanóa, grillað hækbrauð, búið til skemmtiatrið og börnin fengu að spreyta sig að leita með snjóflóðaýlu en fyrr hafði verið falin önnur slí­k. Er leið á kvöld var kveikt upp í­ grillinu og í­ kvöldmat var boðið upp á grillaðar pylsur. Stuttu eftir matartí­mann hófst kvöldvaka þar sem sungið var og trallað auk þess sem flokkarnir buðu upp á fyrrnefnd skemmtiatriði.

Börnin áttu að fara heim með gifsgrí­murnar sí­nar í­ dag en það fór forgörðum, hægt er að nálgast grí­murnar hjá okkur milli 9 og 5 næstkomandi mánudag og þriðjudag. Einnig má hringja í­ sí­ma 5650901 til að grennslast fyrir um hvernig megi nálgast þessar forláta grí­mur.

Námskeið 4 Smári Guðnason | 06 júl 2007

Dagsferðin – 4. námskeið

í dag fórum við í­ dagsferð uppá Hvaleyrarvatn. þegar komið var á áfangastað fengu krakkarnir sér að borða og svo hófst póstaleikur við vatnið þar sem farið var útá kanó, poppað popp yfir eldi, búin til skemmtiatriði og margt fleira. Eftir póstaleikinn héldum við kvöldvöku þar sem hver flokkur sýndi skemmtiatriðið sem þau höfðu búið til fyrr um daginn og sungum saman létta skátasöngva. Eftir kvöldvökuna var farið beint í­ það að grilla pylsur og gefa krökkunum að borða svo var lagt af stað á hinn endann á vatninu þar sem foreldrar sóttu krakkana.

Námskeið 4 Smári Guðnason | 04 júl 2007

Dagur 3

í dag fórum við í­ póstaleik fyrir hádegi þar sem við gerðum gifsgrí­mur, fórum í­ leiki og margt fleira. Eftir hádegi var ferðinni heitið í­ Sundhöll Hafnarfjarðar og skemmtu krakkarnir sér svaka vel á sundi.

Námskeið 4 Smári Guðnason | 02 júl 2007

Fjórða námskeiðið

í dag hófst fjórða námskeið útilí­fsskólans. Við byrjuðum á því­ að fara í­ nokkra kynningarleiki og skipta krökkunum niður í­ þrjá flokka sem fundu sér sí­ðan nafn og hróp í­ sameiningu og bjuggu sí­ðan til flokksfána.  Eftir hádegi var farið í­ póstalaeik þar sem krakkarnir fengu að klifra, læra skátadulmál, fara í­ nokkrar skátaþrautir og margt fleira.