Námskeið 2 Dagný Vilhelmsdóttir | 27 jún 2008
2. námskeið: 4. og 5. dagur
Við lögðum af stað á Hvaleyrarvatn upp úr 10 á fimmtudeginum. þegar komið var á Hvaleyrarvatn fengum við okkur hádegismat og hófum svo póstaleik. í póstaleiknum fórum við á kanóa, poppuðum yfir eldi, skoðuðum skátahandbókina, bjuggum til skemmtiatriði fyrir kvöldið oglærðum að hnýta nokkra nytsamlega hnúta ásamt því að súrra þrífót. Eftir póstaleikinn tók við frjáls tími þar sem ýmislegt var brallað fram að kvöldat en í matinn voru grillaðar pylsur. Stuttu eftir mat var kveiktur varðeldur og haldin kvöldvaka, rétt fyrir utan tjaldstæðið okkar. í kvöldvökunni sýndu flokkarnir skemmtiatriðin sín og þess á milli var sungið og trallað. í dag fórum við í stuttan póstaleik. í honum lærðum við um útivistarklæðnað, ætar plöntur í náttúrunni og á áttavita. Fram að brottför var svo frjáls tími þar sem valið stóð á milli þess að gera vinabönd, fara í leiki, fara út á kanó eða hreinlega finna upp á einhverju skemmtilegu sjálfur. Um tvö í dag var svo lagt af stað aftur upp í skátaheimili og gekk ferðin þangað afar vel.
Myndir frá útilegunni eru hér.
Námskeið 2 María Björg Magnúsdóttir | 23 jún 2008
Námskeið 2: Dagur 1
í morgun fórum við í ýmsa kynningar- og nafnaleiki. Svo var skipt í flokka og hver flokkur fann sér nafn og flokkshróp og bjó sér svo til flokksfána. Eftir hádegismat var svo vígslan og þá fengu allir klút og hnút. Að því loknu fórum við í póstaleik þar sem til dæmis var iðkað jóga, farið í kims-leik og grillaðar pylsur á teini og ýmislegt fleira skemmtilegt.
Námskeið 2 Smári Guðnason | 22 jún 2007
íštilegunni lokið
Nú rétt í þessu lauk útilegunni á Hvaleyrarvatni. Lagt var af stað á hjólum frá Hraunbyrgi í gærmorgun og gekk ferðin uppeftir mjög vel. þegar komið var á staðinn fengu krakkarnir sér að borða og svo var haldið í póstaleik þar sem krakkarnir fengu að fara á kanó, poppa popp yfir eldi, gera skemmtiatriði og margt fleira. Síðar um kvöldið grilluðum við fullt af pylsum sem krakkarnir snæddu í lautinni fyrir aftan skálann. Síðar um kvöldið var haldið á kvöldvöku undir stjórn Óla og Smára þar sem krakkarnir sungu og sýndu skemmtiatriðin sín. Að lokinn kvöldvöku grilluðu krakkarnir sér síðan sykurpúða og fengu sér heitt kakó.
 í föstudeginum fóru krakkarnir niður að vatni og veiddu síli ásamt því að fara útá kanó. Einnig voru krakkarnir í leikjum í bland við að ganga frá dótinu sínu. Rétt eftir hádegi var haldið af stað í Hraunbyrgi þar sem þau voru síðan sótt.
* WPG2 Plugin Not Validated *
Námskeið 2 Smári Guðnason | 20 jún 2007
Dagur 3
í dag fórum við í strætóferð inní Kópavog þar sem við fórum í Sundlaug Kópavogs. í leiðinni stoppuðum við hjá bókasafninu þar sem við borðuðum hádegismat og fórum í leiki. Krakkarnir skemmtu sér allir mjög vel í sundinu og voru því ekki alveg nógu hress með að þurfa að fara uppúr lauginni.
 í morgun munum við svo hjóla uppá Hvaleyrarvatn þar sem við förum í útileguna og minnum við því foreldra á að passa að hjól barnanna séu í góðu lagi.
* WPG2 Plugin Not Validated *
Námskeið 2 Smári Guðnason | 19 jún 2007
Dagur 2
í dag var farið í tvo póstaleiki. Fyrir hádegi lærðu krakkarnir um íslenska fánann, fánahnútinn og lærðu að flagga að skátasið. Einnig lærðu þau að skrifa með skátadulmáli og notuðu sítrónur til að skrifa ósýnilega skrift. Eftir hádegi hituðu krakkarnir pylsur yfir eldi, fengu að klifra, kynntust aðeins skyndihjálpinni og margt fleira. Mikið fjör var hjá krökkunum og voru þau flest orðin mjög þreytt þegar líða fór á daginn.
í morgun verður farið í sund og verða krakkarnir því að muna eftir að taka sundfötin með sér.
Námskeið 2 Nanna Guðrún Bjarnadóttir | 18 jún 2007
Annað námskeið íštilífsskólans hafið
í dag hófst annað námskeið íštilífsskólans. Dagurinn byrjaði á kynningarleikjum og svo var skipt í flokka. þá fóru flokkarnir hver í sínu lagi að finna sér sniðugt nafn og hróp ásamt því að þau bjuggu sér til fána.
Eftir hádegi var farið í póstaleik þar sem krakkarnir fengu að klifra, hita pasta á prímus og margt fleira.
* WPG2 Plugin Not Validated *