Námskeið 6 Smári Guðnason | 19 ágú 2008
Námskeið 6: Dagur 5 – Dagsferð
í dag var hjólað uppá Hvaleyrarvatn í dagsferð. í Hvaleyrarvatni var farið á kanó, gerð skemmtiatriði, farið í refaleit og leiki. Að loknum póstaleik voru grillaðar pylsur og svo var haldin kvöldvaka þar sem flokkarnir sýndu skemmtiatriði. Ferðinni var svo lokið kl 19 þegar foreldrar komu og sóttu ánægða krakka á Hvaleyrarvatnið.
Námskeið 6 Nanna Guðrún Bjarnadóttir | 21 júl 2007
The Amazing race
í fimmtudaginn og föstudaginn fórum við í útilegu á Víðistaðartúni ásamt öðrum útilífsskólum á höfuðborgarsvæðinu. í fimmtudeginum fórum við í risa póstaleik um allan Hafnarfjörð, þar fórum við að dorga, fórum í sjóferð með Björgunarsveit Hafnarfjarðar, sund, tásluhike í Hellisgerði, kanóa, sig og Klifur. Um kvöldið var svo haldin kvöldvaka þar sem allir sungu og skemmtu sér. í föstudeginum poppuðum við popp, spældum egg og hituðum núðlusúpur á prímus, gerðum vinabönd og margt fleirra. þessi útilega heppnaðist ótrúlega vel og fóru allir ánægðir heim.
Námskeið 6 Nanna Guðrún Bjarnadóttir | 19 júl 2007
Dagur 3 – Hjólaferð
í dag fórum við í hjólaferð á ílftanes þar sem við konum við í fjörunni og týndum steina og borðuðum hádeigismat. í famhaldi af því hjóluðum við í gegnum ílftanesbæ og svo til bara í Hraunbyrgi. þegar við vorum komin til bara eftir góða hjólaferð fórum við í kims-leik og bjuggum til steinkalla og úr steinunum sem við týndum í fjörunni.
Námskeið 6 Nanna Guðrún Bjarnadóttir | 18 júl 2007
Dagur 2
Námskeið 6 Smári Guðnason | 17 júl 2007
Námskeið 6 hafið
í dag hófst sjötta námskeið íštilífsskólans. Við byrjuðum á því að fara í kynningarleiki og svo skiptum við krökkunum í flokka. þá ákváðu flokkarnir sér nafn og flokkshróp í sameiningu ásamt því að búa til fána.
Eftir hádegi var farið í póstaleik þar sem krakkarnir lærðu að hita núðlur á prímus, fengu að klifra og margt fleira.