Námskeið 1 Dagný Vilhelmsdóttir | 20 jún 2008
Námskeið 1: Dagur 4
í dag var farið í dagsferð, hjólað var að Hvaleyrarvatni og þar farið í póstaleik. Farið var út á bátana, grilluð hækbrauð, lært að skrifa dulmál og búin til skemmtiatriði fyrir kvöldið. í kvöldmat voru grillaðar pylsur og eftir mat var kvöldvaka þar sem flokkarnir sýndu hver sitt skemmtiatriði og sungin voru sígild lög.
Námskeið 1 María Björg Magnúsdóttir | 19 jún 2008
1. námskeið. Dagur 3
í morgun fórum við í póstaleik, í honum var klifrað, poppað á eldi og gerðir steinkallar úr steinunum sem við fundum í fjörunni í gær. Einnig var blindrapóstur og skyndihjálparfræðsla. Eftir hádegi fórum við í götuleik um bæinn þar sem leyst voru ýmis skemmtileg verkefni. Myndir frá deginum eru komnar á netið.
Námskeið 1 Dagný Vilhelmsdóttir | 18 jún 2008
1. námskeið: Dagur 2
í dag lukum við við póstaleikinn sem við hófum á mánudaginn, en ekki náðist að klára hann vegna veðurs. Farið var í fjöruna við Herjólfsgötu og þar týndir steinar sem verða svo notaðir á morgun. Við gengum frá Herjólfsgötu í Suðurbæjarlaug með stoppi á Thorsplani þar sem snæddur var hádegisverður. Eftir sundið gengum við heim á leið meðfram sjónum.
Námskeið 1 &Útilífsskóli 2008 Smári Guðnason | 16 jún 2008
Fyrsta námskeiðið hafið
í dag var fyrsti dagurinn á námskeiðinu. Farið var í kynningarleiki, krökkunum skipt upp í flokka og hver flokkur um sig valdi sér nafn, hróp og gerði flokksfána. Eftir hádegi voru krakkarnir svo vígðir inn í íštilífsskólann og svo var farið í póstaleik þar sem meðal annars voru eldaðar núðlur á prímus, farið í kims leik, haldnir voru litlir ólympíuleikar o.fl. Svo kom hellidemba og við flúðum inn í ísadans og leiki.
Námskeið 1 Smári Guðnason | 18 jún 2007
Dagur 5 – Dagsferðin
Dagurinn byrjaði á hressandi hjólaferð uppá Hvaleyrarvatn og þegar komið var á áfangastað hófst póstaleikur í nágrenni vatnsins en þá fengu krakkarnir að poppa popp yfir eldi, sigla á kanóum og svo margt margt fleira. Eftir póstaleikinn voru grillaðar pylsur handa öllum og hófst svo kvöldvaka eftir það.
* WPG2 Plugin Not Validated *
Námskeið 1 Smári Guðnason | 18 jún 2007
Dagur 4
þennan dag var póstaleikur þar sem krakkarnir spreyttu sig meðal annars á því að taka ljósmyndir og gengu í blindlínu. Eftir hádegi var farið í götuleik sem teygði sig alla leið uppá Hamar.
Námskeið 1 Smári Guðnason | 13 jún 2007
Dagur 3
Dagurinn í dag byrjaði með fánapóstaleik þar sem krakkarnir lærðu meðferð íslenska fánann, fánahnútinn og einnig fengu krakkarnir að mála steinkallana sem þau gerðu í gær. Eftir hádegi var haldið af stað í sund í Salalauginni í Kópavogi við mikinn fögnuð krakkanna.
Við erum í veseni með myndavélina okkar þannig að því miður eru myndirnar frá deginum í dag ekki komnar á netið. Við munum reyna að koma myndunum á netið um leið og við getum.
Námskeið 1 Smári Guðnason | 12 jún 2007
Dagur 2
í dag fórum við með krakkana í fjöruferð þar sem krakkarnir týndu steina í steinkalla. Eftir hádegi límdu krakkarnir steinana saman, lærðu smá skyndihjálp, lærðu að kveikja eld, hituðu núðlur á prímus og fóru í klifurvegginn.
 í morgun verður farið í sund og minnum við því krakkana á að koma með sundföt.
Námskeið 1 Smári Guðnason | 11 jún 2007
Fyrsti dagurinn
í dag fórum við með krakkana í kynningarleiki og skiptum þeim í fimm flokka. Flokkarnir þurftu svo í sameiningu að finna nafn á flokkinn ásamt því að búa til flokksfána. Flokkarnir heita: Bláu demantarnir 5, Mörgæsirnar, Leðurblökurnar, Bleiksvörtupardusarnir og 5 hundar. Eftir hádegi var farið í póstaleik þar sem krakkarnir fengu að klifra, fara í kimsleiki, lærðu dulmál og margt fleira. Myndirnar frá deginum í dag eru hér.